Dúx á hestalínu
5.06.2019 Fimm nemendur, þar á meðal Svanhildur Guðbrandsdóttir Dúx FSu vorið 2019 útskrifuðust af Hestabraut laugardaginn 25. mai. Svanhildur Guðbrandsdóttir frá Syðri-Fljótum við Kirkjubæjarklaustur og Dagbjört Skúladóttir frá Þórustöðum í Ölfusi voru verðlaunaðar fyrir góðan árangur í hestatengdum fögum við þessa útskrift.
[...Meira]
Sjö hross felld vegna nýs taugasjúkdóms á Íslandi
4.06.2019 Áunninn fjöltaugakvilli í hrossum (acquired equine polyneuropathy, AEP) sem þekktur er í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, hefur nú greinst í fyrsta sinn hér á landi. Sjúkdómurinn uppgötvaðist í Skandinavíu fyrir nær 25 árum en þrátt fyrir víðtækar rannsóknir er orsökin ekki þekkt.
[...Meira]
Samatekt frá Félagsmóti Skagfirðings
4.06.2019 Félagsmót Skagfirðings var haldið í dag 1.júní á félagssvæði Skagfirðings á Sauðárkróki. Mótið fór vel fram þar sem knapar voru prúðir og tímanlegir og endað var á grilli í félagsheimilinu Tjarnabæ að móti loknu.
[...Meira]
Nýr taugasjúkdómur greinist í hrossum hér á landi
3.06.2019 Áunninn fjöltaugakvilli í hrossum (acquired equine polyneuropathy, AEP) sem þekktur er í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, hefur nú greinst í fyrsta sinn hér á landi. Sjúkdómurinn uppgötvaðist í Skandinavíu fyrir nær 25 árum en þrátt fyrir víðtækar rannsóknir er orsökin ekki þekkt.
[...Meira]
Viðar Ingólfsson
3.06.2019 Viðar Ingólfsson stundar tamningar og þjálfun að Kvíarhóli í Ölfusi. Hann er m.a. margfaldur Íslandsmeistari og Landsmótssigurvegari í tölti. Hann var íþróttaknapi ársins 2008 og gæðingaknapi ársins 2007
[...Meira]
Gæðingamót Spretts 2019, niðurstöður
3.06.2019 Glæsilegt gæðingamóti Spretts fór fram á föstudag og laugardag og var síðasta grein mótsins A-úrslit í A-flokki gæðinga. Margar glæsilegar sýningar sáust í öllum flokkum mótsins.
[...Meira]
Niðurstöður Gæðingamóts Sörla og Hraunhamars 2019
1.06.2019 Hér birtast allar niðurstöður frá A-úrslitum laugardagsins 1.júni á Gæðingamóti Sörla og Hraunhamars. Framgangur móts hefur gengið rosa vel, knapar prúðir og tímanlegir. Mótanefnd þakkar knöpum fyrir frábært mót.
[...Meira]
Guðmundur Björgvinsson
1.06.2019 Guðmundur Björgvinsson stundar tamningar og þjálfun á Efri-Rauðalæk. Guðmundur varð Íslandsmeistari í fjórgangi 2012 og 2015, og varð heimsmeistari í fjórgangi árið 2015. Guðmundur var kosinn knapi ársins árið 2012 og 2015 og skeiðknapi ársins 2017.
[...Meira]
Reiðtúr hjá Hestamannafélaginu Ljúf í Hveragerði
31.05.2019 Ferða og skemmtinefnd Ljúfs ætla að efna til sameiginlegs reiðtúrs sunnudaginn 9.júní í tilefni loks hreinsunarátaks í dalnum. Riðið verður til Halldórs og Bíbí á Nautaflötum (fjárhúsunum - beint á móti Hvammi) en þar sem við komum úr ýmsum áttum ætlum við að hittast klukkan 15.00 þar sem við munum fá okkur hressingu saman.
[...Meira]
Opin Gæðingakeppni Hrings og úrtaka fyrir Fjórðungsmót.
31.05.2019 Hestamannafélagið Hringur mun halda opið gæðingamót sitt dagana 14 – 15 júní n.k. Mótið er jafnframt úrtaka fyrir félagsmenn Hrings fyrir Fjórðungsmót Austurlands sem haldið verður síðar í sumar.
[...Meira]
Uppskeruhátíð 2. nóvember á Hótel Sögu
31.05.2019 Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga og Félags hrossabænda verður haldin laugardagskvöldið 2. nóvember í Súlnasal Hótel Sögu.
[...Meira]
Niðurstöður Forkeppni Gæðingamóts Sörla
31.05.2019Niðurstöður Forkeppni Gæðingamóts Sörla
[...Meira]
Niðurstöður fimmtudagsins - Gæðingamót Fáks 2019
Ljósvaki sigraði með 9,00!
30.05.2019 Óhætt er að segja að hin opna gæðingakeppni Fáks hafi verið sterk en í dag Uppstigningardag fóru fram úrslit allra flokka, töltkeppni og skeiðgreinar.
[...Meira]
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
30.05.2019 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir er tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hún starfar á Hrossaræktarbúinu Króki/Margrétarhofi. Aðalheiður hefur verið að gera það gott á keppnisbrautinni undanfarin ár
[...Meira]
Dagskrá og uppfærðir Ráslistar - Gæðingamót Sörla
30.05.2019 Hér að neðan er endanleg Dagskrá. Ráslistar eru komnir í loftið en við viljum benda knöpum í A-flokk og B-flokk að fylgjast vel með því það er ekki hægt að setja blandaðan ráslista inná kappa-appið, viljum við biðja þá knapa um að fylgjast vel með á eventinu á facebook og sorli.is uppá uppfærða ráslista,afskráningar og annað.
[...Meira]
Akureyrarmeistaramót - Úrslit
30.05.2019 Akureyrarmeistaramótið í hestaíþróttum fór fram um síðustu helgi á Hlíðarholtsvellinum á Akureyri. Þátttaka var góð og veðrið var með ágætum. Úrslit urðu sem hér segir.
[...Meira]
Sterkir hestar í Víðidalnum
Gæðingamót Fáks - niðurstöður miðvikudags
30.05.2019 Opið gæðingamót Fáks byrjaði í dag og fór fram forkeppni í B-flokki áhugamanna og opnum flokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og A-flokki áhugamanna og opnum flokki.
[...Meira]
Sörli og Hraunhamar kynna opna skeiðleika, laugardaginn 1. júní kl. 14:30
29.05.2019 Keppt verður í 100 m Flugskeiði P2 á nýendurgerðri skeiðbraut félagsins sem vakti mikla lukku á nýafstöðnu íþróttamóti félagsins. Því hefur jafnvel heyrt fleygt að hér sé um “bestu skeiðbraut landsins” að ræða – en líklega metur það hver og einn best sjálfur.
[...Meira]
Röðun hrossa í Spretti dagana 3.-6. júní
28.05.2019 Kynbótasýning verður í Spretti í Kópavogi dagana 3. til 6. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 3. júní . Yfirlitssýning verður fimmtudaginn 6. júní. Alls eru 79 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar.
[...Meira]
Opna Gæðingamót Spretts, skráning lýkur á miðnætti í kvöld
28.05.2019 Opna Gæðingamót Spretts fer fram dagana 1. og 2. júní 2019. Skráning fer fram á Sportfeng, www.sportfengur.com. Skráning hefst 3. maí og lýkur 29. maí. á miðnætti
[...Meira]
Icelandic horses break through ice - UNCUT VERSION