Stórmót Hrings 2019
13.08.2019 - 12:38Nú er komið að hinu árlega Stórmóti Hrings. Mótið verður haldið á Hringsholtsvelli helgina 23-25 ágúst n.k. og keppt verður í eftirfarandi greinum.
Tölt (T1) opin flokkur/1 flokkur
Tölt (T3) 2 flokkur, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki
Tölt (T2) opinn flokkur.
Fimmgangur (F1) Opin flokkur/1 flokkur
Fimmgangur (F2) 2 flokkur
Fjórgangur (V1) Opin flokkur/1 flokkur
Fjórgangur (V2) 2 flokkur, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki
100m skeið
150m skeið
250m skeið
Gæðingaskeið
250m stökk (ekki hægt að skrá sig í stökk á sportfeng. Skráningu skal senda á motanefnd@hringur.net)
Það verður rafræn tímataka í hlaupagreinum og 5 dómarar dæma í hringvallagreinum.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Lokafrestur fyrir skráningar og greiðslu skráningargjalda er þriðjudagurinn 20 ágúst kl 18:00.
Skráningargjöld skulu greidd inn á reikning félagsins og staðfesting send á netfangið:
motanefnd@hringurdalvik.net
Athugasemdir