Suðurlandsdeildin 2020
02.10.2019 - 08:18Undirbúningur er hafinn fyrir fjórða keppnisárið í Suðurlandsdeildinni! Frábær stemning hefur verið í deildinni síðustu ár og er sko enginn bilbugur á fólki. Nú er tækifæri til þess að setja saman lið og vera með á komandi keppnistímabili í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu! Þrjú sæti eru laus í deildinni.
Þau lið sem eiga þátttökurétt í deildinni þurfa að staðfesta fyrir 15. október hvort þau muni halda áfram.
Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 31. október. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn 3 áhugamanna og 2-3 atvinnumanna. Dregið verður úr umsóknum.
Þau lið sem féllu úr deildinni 2019 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.
Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Á hverju kvöldi keppa 2 áhugamenn og 2 atvinnumenn, nema á lokakvöldinu - þá geta allir keppt. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð.
Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.
Áhugamaður: Er að lágmarki 22 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði.
Suðurlandsdeildin hefst þann 4. febrúar 2020 þar sem keppt verður í parafimi. Keppniskvöldin verða fjögur. Á síðasta kvöldinu verður einnig keppt í skeiði og keppir þá einn áhugamaður og einn atvinnumaður eða tveir áhugamenn fyrir hvert lið í þeirri grein. Ætlast er til að allir liðsmenn keppi a.m.k. einu sinni á tímabilinu.
Dagsetningar móta hafa verið ákveðnar.
4. febrúar - Parafimi
18. febrúar - Fjórgangur
3. mars – Fimmgangur
17. mars – Tölt og skeið
Umsóknarfrestur er til 31. október.
Þátttökugjald er 130.000 kr.
Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á [email protected]
Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Suðurlandsdeildina 2020.
Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!
Athugasemdir